Tónleikar
Glatt hefur mikla reynslu í skipulagningu margvíslegra tónleika og tónlistarhátíða og hefur fólkið á bak við Glatt haft aðkomu að stórum tónlistarviðburðum, bæði sem skipuleggjendur og flytjendur, hér heima og erlendis. Glatt getur haft margvíslega aðkomu að tónleikahaldi og býður þjónustu sem getur innihaldið allt frá umsjón með markaðs- og miðlamálum, framleiðslu á varningi eða bókun á búnaði yfir í að sjá um tónleikana frá A til Ö.
Eitt af fyrstu verkefnum Glatt var aðkoma að tónleikum FM Belfast í Austurbæjarbíói í október 2025. Þar sá Glatt um markaðs- og kynningar og samskipti við fjölmiðla og samstarfsaðila ásamt framleiðslu og sölu á varningi á tónleikunum sjálfum.
Hátíð hirðarinnar
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Pellentesque ante quam, ultrices nec vulputate et, egestas et quam. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Quisque vestibulum, nunc in finibus condimentum.
Aðrir tónleikar og hátíðir
Aðstandendur Glatt hafa í gegnum árin átt frumkvæði og aðkomu að skipulagi tónlistarviðburða á borð við Innipúkann, Sumarmölina, Partýþokuna, Sumargleðina og tónleikaraða á borð við Mölina á Drangsnesi og Sumartónleika í Havarí í Berufirði.
